fimmtudagur, maí 13, 2004

Það er ekkert hár eftir á hausnum á mér!
Klippikonan var eitthvað alveg að misskilja mig og klippti svona kleópötru klippingu á mig og ætlaði bara að láta þar við sitja. Ég horfði með þjáningaraugum á hana og sagðist ekki ætla að vera svona og heimtaði að fá allavega styttur í þetta til að laga ósköpin og við það styttis hárið enn meir. En held ég sé bara nokkuð sátt núna held ég sé að venjast þessu. Svo ofan á allt saman er ég orðin þvílík ljóska. Úff svoldil breyting, enda var löngu komin tími á breytingu. Fæ samt svona nett sjokk í hvert sinn sem ég lít í spegil.
En þetta vex hvort eð er eins og arfi þannig að ég verð komin með hár aftur í lok sumars!!!

Engin ummæli: