Var að horfa á forkepnina fyrir eurovision og það voru nánast öll lögin eins, ekkert nema trommutaktur og píkupopp. Merkilegt hvernig þetta er það eru alltaf öll lög eins í þessari keppni. Fannst svoldið fyndið að horfa á Bosníska dúddann hann er alveg eins og Skjöldur Mio hann söng heldur ekki svo mikið hvíslaði aðlega eitthvað og dillaði sér svo skein á vel vaxaða bringuna, ekki miklar tónsmíðar þar á ferð.
Annars heyrði ég ekki helminginn af lögunum Lúkas var að horfa á þetta með mér og hann talaði og talaði og malaði og malaði, hann er á þessum líka skemmtilega akkuru aldri. Minnir mig alltaf á rassálfana í Ronju ræningjadóttur akkuru gerir hún þetta akkuru akkuru???????
Verst að það er alveg hætt að virka að svara ég veit það ekki því þá kemur spurninginn akkuru veistu það ekki?
Akkuru akkuru akkuru!!!
miðvikudagur, maí 12, 2004
Birt af Eyrún kl. 21:33
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli