miðvikudagur, maí 12, 2004

Get ekki beðið eftir að þessi dagur verði búinn því þá er ég komin í frí frí frí!!!
Ef frí skildi kalla er nebblilega að fara að passa litlu frændur mína 5 ára og 1 árs, foreldrarnir eru stungnir af til útlanda og skilja hersinguna eftir hjá mér. Gaman af því! Þeir eru reyndar í leikskólanum yfir daginn svo ég get ekki kvartað. Ég ætla svo að vera ýkt skemmtileg frænka á föstudag og leyfa þeim að vera í fríi í leikskólanum og skella mér austur með þá til að skoða lömbin og eitthvað svoleiðis. Grunar sterklega að þeim finnist það gaman miðað við hvað þeim fannst gaman í húsdýragarðinum, allavega á Felix eftir að fíla sig í botn.
Svo er ég að fara í langþráða klippingu á morgun, fæ loksins að losna við lubbann hlakka mikið til. Kannski maður klippi bara allt af? Nei annars ég tími því ekki, þetta er svo helv... lengi að vaxa aftur.

Engin ummæli: