Það var maður sem kom inn í söluskálann á Blönduósi.Afgreiðslustúlkan býður góðan dag.
"Mig vantar sundsmokka" sagði maðurinn.
Afgreiðsludaman varð undrandi á svip...sagði þó ekki neitt, en fór á bak við og sagði við aðra sem þar var.
"Heyrðu, það er maður frammi sem biður um sundsmokka...veist þú hvað það er ?"
"Sundsmokka??" sagði konan. "Taktu bara smokkakassann og leyfðu honum að velja"
Afgreiðsludaman fór með kassann fram og lagði hanná borðið. Maðurinn horfði hissa á alla smokkana og sagði svo. "Hvað er þetta?"
"Nú þetta eru sundsmokkar" sagði stúlkan hikandi.
"Ég bað um sunnudagsmoggann"!!!
Held við íslendingar ættum að fara að venja okkur á að tala aðeins skýrar og hægar.
En það er samt endalaust hægt að hlægja af þessu.
fimmtudagur, maí 20, 2004
Sundsmokkar......
Birt af Eyrún kl. 15:54
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli