fimmtudagur, maí 20, 2004

Týpískt almennur frídagur í dag og ég að vinna. En ætti svo sem ekki að kvarta maður er jú að fá smá extra borgað fyrir þetta. Verst að skattmann hirðir alltaf allt saman.
Jamm og jæja enn einn dagurinn í þessari yndislegu vinnu!
Hugga mig við það að ég er að fara í frí um helgina.
Annars er svo mikið lúxus líf á mér núna er nebblilega á kagganum frá pabba og Siggu, ég var búin að gleyma því hvað það er mikill lúxus að vera alltaf á bíl. Sérstaklega þar sem Unnar stakk mig af og fór að vinna einhversstaðar lengst út í rassi. Kolbeinn dró hann með sér í einhverja vinnu fyrir vestan þannig við Bogga erum orðnar grasekkjur á meðan.
En við förum létt með það ekki satt Bogga?
oh well gotta go back to work!


Engin ummæli: