mánudagur, júní 07, 2004

Úff er búin að vera þrusu slöpp alla helgina ömurlegt að eyða fríinu sínu svoleiðis:(
Kíkti samt aðeins í bæinn í gær til að kíkja á hátíðarhöldin oh men það var svo stappað af fólki að það var ekki sniðugt. Austurvöllur var bókstaflega þakin af fólki.
Fór svo á leikinn í gærkvöldi góð stemning í krikanum enda alltaf gaman þegar "strákarnir okkar" vinna með glæsibrag.
Ég reyndar missti andlitið í gær þegar fólkið fyrir aftan mig byrjaði að tala hér er smá brot af samtalinu,
Konan; hvað tungumál ætli þeir tali þarna í ítalíu.
Maður; nú veistu það ekki?
Konan; er það svona rómversk ameríska?
Maður; nei það held ég ekki!
Ok skiljiði núna afhverju ég missti andlitið!
Svo var ég með einn vel í holdum fyrir framan mig sem átti það til að taka bakföll ef ísland skoraði og ég nánast endaði með hann í fanginu eftir hvert mark. Hann var ekki að taka því sem hint þegar ég settist þannig að hnéð boraðist inn í bakið á honum nei hann vaggaði sér bara til í sætinu svo hann hefði það kósý.
En það var þrusugaman á leiknum þrátt fyrir allt saman.

Engin ummæli: