Alltaf þegar ég afgreiði fólk frá Akureyri finnst mér eins og það haldi að það sé yfir aðra hafið, veit ekki afhverju en just get that feeling!
Átti frí í gær sem var náttúrulega bara æðislegt fór í skoðun og það er bara allt í gúddí,heyrðum mjög sterkan og góðan hjartslátt. Vona bara að allt haldi áfram á góðri leið:)
Annars notaði ég daginn bara í afslöppun og leti.
Fór svo með Gróu í bíó sáum alveg brilliant mynd Good Bye Lenin, mæli hiklaust með henni hún er alveg þrælgóð.
Maður fer allt of sjaldan á evrópskar myndir í bíó, enda eru þær svo sjaldan. Endalaus amerísk vella sem maður horfir á.
föstudagur, ágúst 06, 2004
Birt af Eyrún kl. 14:36
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli