Ég er svvoooo þreytt lá andvaka upp í rúmi til að verða 5 í morgun, og var þar af leiðandi ekkert rosalega kát þegar klukkan byrjaði að arga á mig kl. 9:15.
Ég er allavega í takmörkuðu stuði að vera að vinna núna langar miklu frekar að vera í rúminu mínu.
Ótrúlega pirrandi að vera svona andvaka það er fátt leiðinlegra en að liggja grútmygluð og þreytt upp í rúmi og geta bara engan vegið sofnað. Alveg sama hvað maður gerir.
En það eru bara 7 tímar eftir í vinnunni og svo kemst ég heim að leggja mig.
laugardagur, ágúst 07, 2004
Birt af Eyrún kl. 11:03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli