miðvikudagur, ágúst 25, 2004

Ég held ég sé alveg við það að andast úr leiðindum á þessu námskeiði. Er sem sagt á námskeiði í vinnunni til að læra á nýtt vaktaplanssystem sem á að fara að taka upp. Og ó mæ god það er endalaust hægt að blaðra um allra einföldustu hluti.
Það þyrfti alveg að athuga að skipta hópnum betur upp tölvuvædda og ótölvuvædda og þá sem nenna að læra á kerfið 1 2 og 3 og hinar sem nenna að búa til vesen.
Róbert sem er að kenna okkur fær alveg plúsa í kladdann fyrir endalausa þolinmæði.
En það eru bara 2 tímar eftir af þessari martröð og svo tekur við 5 tíma vinna í að svara þessum yndislegum kúnnum.

Engin ummæli: