miðvikudagur, ágúst 25, 2004

Ég er svona næstum að springa úr stolti af sjálfri mér eftir gærdaginn en ég stóð við loforðið og labbaði alla leið heim. Ekkert smá dugleg!
Lagði af stað úr ármúlanum kl 16 og var komin heim 17:40. Stoppaði reyndar í rúman hálftíma í vinnunni hjá pabba í millitíðinni svo ég var ekki nema klukkutíma að labba heim.
Mér finnst þetta allavega drullugott hjá mér.
Ekki það að ég sé að spá í að fara að stunda þetta grimmt þar sem festingarnar neðst í bakinu voru helaumar í gærkvöldi, ég haltraði um heimilið eins og gamalmenni með gigt á háu stigi.
Festingarnar eru enn að bögga mig en ég get allavega gengið eðlilega núna er bara asskoti vont að sitja svona mikið. Heilir 9 tímar í setu í dag 4 á þessu námskeiðisskratta og 5 í vinnunni.
Held ég taki stefnuna á heitt bað þegar ég kem heim.

Engin ummæli: