Arg Og Vodafone er að gera mig vitlausa í hvert skipti sem ég kem heim er missed call á heimasímanum mínum, og það er alltaf Og Vodafone að hringja í mig. Ég er búin að segja þeim að ég sé að vinna hjá samkeppnisaðilanum þannig að mig langar ekkert að skipta um símafyrirtæki. En hætta þeir að hringja nei!Einn af þeim sagði bara ok heyrðu ég tek þig bara af listanum hjá okkur, en so far er það eitthvað ekki að virka því þeir eru enn að hringja. Það eru að verða komnar 3 vikur síðan þeir byrjuðu að hringja og þeir virðast ekki ætla að hætta.
Finnst frekar fúlt að vera lögð í einelti af Og Vodafone
Þannig að ef einhver sem vinnur hjá þessu fyrirtæki les þetta þá .......
HÆTTIÐ AÐ HRINGJA Í MIG!!!!!!!!!!
föstudagur, september 10, 2004
Birt af Eyrún kl. 08:53
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli