föstudagur, september 10, 2004

jæja þá er maður búin að fá að sjá krílið í sónar og allt lítur alveg glimrandi vel út. Held reyndar að þetta sé einhver þrjóskupúki því það var ekkert á því að snúa sér við fyrir okkur sama hvað var potað í það. En það náðist að fá vangamynd á endanum svo allir urðu sáttir.
Ótrúlega skrítið að sjá allt í einu þennan kúlubúa sem maður er búin að vera með í mallanum í 20 vikur og nú eru bara 20 vikur í að hann láti sjá sig. Og miðað við hvað fyrri hlutinn er búin að vera fljótur að líða býst ég ekki við öðru en að seinni hlutinn verði það líka.

Engin ummæli: