mánudagur, september 13, 2004

Mætt í vinnu aftur eftir frekar bussy helgi. Kíkti í pínu stund í afmæli hjá Guðný á föstudagskvöldið fín stemning þar en við stoppuðum bara stutt þar sem Unnar átti að vera mættur út á flugvöll kl. 06.00 þannig að við þurftum að rífa okkur upp kl.04.
Skutlaði svo hluta af "landsliði íslands" í snóker út á flugvöll alveg grútmygluð og þreytt.
Gerði heiðarlega tilraun til að sofna aftur eftir að ég kom heim en það var ekki alveg að virka, náði að dotta aðeins af og til en ekki að festa svefn:(
Svo reif ég mig upp á rassgatinu og fór í kveðjupartý til Ríkeyjar ( svindl að flytja til útlanda og skilja mig eftir) . Enn og aftur stoppaði ég bara stutt en í þetta sinn vegna endalausrar þreytu (djö...... aumingi er maður að verða) keyrði heim með stýrurnar í augunum og skreið beint upp í rúm og rotaðist.
Átti svo nokkurð rólegan dag í gær mætti í skírn klukkan 11 hjá Ellu og Sigga, prinsinn fékk nafnið Theodór.
Svo reyndi ég bara að taka því rólega enda hálfslöpp eitthvað kom mér bara vel fyrir í sófanum í gærkvöldi og reyndi að bögglast við að halda áfram með teppið sem ég byrjaði á fyrir stuttu. Veitir víst ekki af að halda áfram ef ég á að vera búin með það í janúar.
Held samt núna að ég sé að verða veik, hrollur í mér og er eitthvað hálf tussuleg ekki svo gaman. En það eru bara 6 tímar eftir í vinnunni svo ég hlýt að geta þraukað.

Engin ummæli: