jedúddamía helgin bara búin og mánudagurinn að klárast líka scheiße tíminn líður allt of hratt.
Búin að vera í fríi alla helgina og það er svo næs að vera í fríi. Við Kristín lágum eins og klessur á föstudag og emjuðum af hlátri yfir idol, hvernig dettur sumu fólki í hug að fara í þetta, heyrir það ekki í sjálfum sér?
Svo fór ég í afmæli hjá Siggu á laugardaginn, át yfir mig af kökum og gúmmelaði og lofaði mér að gera það aldrei aftur, held samt að ég eigi ekki eftir að standa við það loforð. Eftir allt átið kíkti ég svo í heimsókn til Gróu, við komum okkur bara ógeðslega vel fyrir og gláptum á 51 dates, Adam Sandler klikkar aldrei (eða sjaldan allavega).
Gærdagurinn fór svo bara í almenna leti tókst að afreka nánast ekki neitt nema vaska upp, henda í þvottavél og baða köttinn. Ræfillinn kom inn og var allur útataður í einhverju ógeði það var eins og einhver hefði velt honum upp úr drullupolli og makað leðju í feldinn á honum. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað hann var kátur við það að vera settur í bað! Æ greyið litla hann var svo blautur og ræfilslegur og allur út í sárum.
Kíkti svo í reykjadalshitting hjá Freyju í gærkvöldi ótrúlega fínt, allt gamlar reykjadalsskvísur sem maður hittir allt of sjaldan.
Helgin er semsagt bara búin að vera ótrúlega fín eini gallinn á henni var að ég þurfti að húka ein heima þar sem Unnsi var í baunalandinu:(
En ekki lengur þar sem ég brunaði til Keflavíkur í morgun og náði í hann og nú er hann bara grounded ekki meiri útlandaferðir í bili og hananú.
mánudagur, október 11, 2004
Helgarskýrslan...
Birt af Eyrún kl. 21:19
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli