föstudagur, október 08, 2004

Sybbin...

Var ógeðslega dugleg í morgun og reif mig upp klukkan 7 og það á frídegi. Ástæða jú ég lofaði að hafa ofan af fyrir henni Kristrúnu frænku á meðan mútta hennar þarf að vera í skólanum. Fínt að vinna sér inn fyrir pössun þegar þar að kemur:)
Skil ekkert í þessum kennurum að reyna ekki að drullast til að minnka kröfurnar aðeins og reyna að semja svo krakkagreyin fari að komast í skólann aftur. Er nánast hætt að hafa samúð með kennurum þar sem þeir virðast ekki vilja draga úr neinum kröfum og þetta verkfall bitnar á þeim sem síst skildi. Æ nenni ekki að vera að velta mér upp úr þessu hér vona bara að þetta verkfall fari að leysast sem fyrst.
Þannig að við frænkur erum bara heima að hafa það kósý, kúra upp í sófa undir teppi með öskubusku í tækinu og höfum gaman af. Tók reyndar pásu frá tækinu og ákvað að slæpast á netinu því augnlokin voru farin að þyngjast all svakalega upp í sófa. Finnst skárri kostur að hanga á netinu en að hrjóta í sófanum svona allavega á meðan ég á að vera að "passa".
Held við drífum okkur bara út að gera eitthvað.


Engin ummæli: