miðvikudagur, október 20, 2004

Snjórinn bara farinn......

Held barasta að veturinn sé aftur komin i biðstöðu mér til mikillar ánægju. Var ekki alveg að fíla það að það væri bara kominn snjór og læti í október. Finnst að snjórinn eigi bara að vera upp í fjöllum. Nema í desember þá vill ég hafa allt á kafi í snjó og svoldið jólalegt en svo má snjórinn bara fara strax eftir áramótin.
Held ég sé bara svona á móti snjónum því ég hef aldrei mátt stunda neinar vetraríþróttir, má ekki fara á skíði og þori varla að leggja í að prufa snjóbretti. Held að hnén mín myndu ekki koma vel út úr því. Langar samt svo að prufa en er held ég of mikið chicken.


Engin ummæli: