laugardagur, október 16, 2004

snökt snökt

Æ vá ég er alveg að fara úr límingunum hérna i vinnunni. Það er alveg ógeðslega mikið að gera og alveg svakalega leiðinlegt fólk að hringja inn. Merkilegt hvað fólk ætlar seint að ná því að þetta er símaskrá ekki þeirra prívat og persónulega kvörtunarþjónusta. Er ógeðslega pist því ég vaknaði svo hress og spræk í morgun en eftir tæpan klukkutíma í vinnunni var sú sæla búin.
Svo er verið að háþrýsti þvo húsið að utan með tilheyrandi hávaða og látum. Á sem betur fer bara 3 klukkutíma eftir í þessari geðveiki.
Ekki minn dagur í dag:(

Engin ummæli: