föstudagur, nóvember 12, 2004

Þetta númer er ekki rétt valið...............

Það er svo geðbilað að gera og það eru allir að biðja um það sama, jebb allir að hringja í dominos.
Gallinn er að símakerfið hjá dominos er hrunið þar sem allir eru að hringja þangað til að fá sér feita pizzu. En hverjir skildu þurfa að svara fyrir það að símakerfið er hrunið og taka við skömmunum jebb nebblilega við! Held að dominos þurfi að ath hjá sér símakerfið fyrir næstu megaviku.
Núna held ég virkilega að maginn minn sé að springa, við Hulda röltum okkur niðrá Quiznos og ég gjörsamlega át yfir mig. Ótrúleg árátta alltaf í manni að troða endalaust í sig. Kannski afleiðing af því að þegar maður var krakki var manni kennt að maður á að klára matinn sinn!!!
Sniðug lexía ef maður kynni að skammta sér passlega í hvert mál.

Engin ummæli: