Ef það er eitthvað sem fer í taugarnar á mér þá er það þegar fólk fer að stafa hlutina ofan í mann. Án djóks þá fer þetta alveg svakalega í mig, gerir fólk sér ekki grein fyrir því að maður situr við það allan daginn að leita í símaskránni og veit þar af leiðandi sirka bát hvernig hlutirnir eru skráðir. Allt í lagi ef þetta eru útlensk nöfn eða fyrirtæki sem heita eitthvað alveg út úr kú. En þegar fólk fer að stafa oní mann nöfn á fyrirtækjum sem allir þekkja þá springur skalinn hjá mér. Kannski er ég bara svona skrítin en þetta fer alveg svaklega í mig
laugardagur, nóvember 13, 2004
Þoli ekki svona
Birt af Eyrún kl. 10:05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli