Ég held ég hafi sett met í aulaskap í morgun. Var að flýta mér svo mikið svo ég yrði ekki of sein í vinnunna að einhvernveginn tókst mér að stíga á reimina á skónum mínum. En ég ákvað að vera ótrúlega sniðug og lyfta löppinni svo ég myndi ekki detta á smettið. En einhvernveginn tókst mér samt að snúa eitthvað upp á löppina á mér og náttúrulega flaug beint á smettið.
Ákvað samt í miðju falli að ég yrði að setja hnén fyrir mig svo ég myndi ekki detta beint á magann, allt til að passa kúluna. Þannig að ég hlunkaðist niður á bæði hnén á fullum krafti.
Ááááiiiiii þetta er geggjað vont!!!!!
Sit í vinnunni og logsvíður í hnén og þau eru byrjuð að bólgna á fullu.
Held ég verði glæsileg stokkbólgin og marin á báðum hnjám eins gott að ég geng aldrei í pilsi, er ekki nógu mikil dama í mér.
Held ég ætti að fá verðlaun fyrir klaufaskap, núna þegar ég hugsa um þetta aftur þá hljómar bara klaufabárðalagið í hausnum á mér. Væri alveg til í að hafa náð þessu á mynd svo ég gæti séð hversu aulalegt þetta var.
Greyið kötturinn fékk taugaáfall út af látunum í mér, hann hljóp beint upp í glugga og ætlaði út en það tókst ekki betur en svo að blómapottur hrundi í gólfið svo ég þarf að fara beint í það að sópa upp mold þegar ég kem heim.
En sem betur fer varð kúlubúinn ekki fyrir hnjaski þar sem hann er sprækur sem aldrei fyrr og sparkar duglega;o)
Ekki minn dagur í dag!
þriðjudagur, nóvember 16, 2004
Klaufabárðarnir
Birt af Eyrún kl. 09:57
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli