Úff þessi jólahelgi var allt of fljót að líða. Er búin að hafa það alveg rosalega gott alla helgina búin að borða á mig gat og letibykkjast alveg fullt. Fékk alveg helling af pökkum og allt eitthvað sem kom sér mjög vel. Nema kannski nylon diskurinn frá brósa, enda fékk ég hann bara upp á húmorinn að gera. En brósi hafði vit á því að skilja innsiglið eftir svo disknum verður pottþétt skipt;oþ
Annars erum við bara búin að vera á flakki milli jólaboða og éta á okkur gat. Verst að að allur þessi salti og reykti matur fer ekki vel í mig fæ svo mikin bjúg af honum að fæturnir á mér voru tvöfaldir á tímabili. Unnsi heldur því fram að ég sé að breytast í hobbita, sem er nú bara alls ekki svo fjarri lagi. En ég þamba bara nóg af vatni og hef hátt undir fótunum og þá lagast þetta allt saman.
Svo er bara vinnuvika framundan eitt jólaboð eftir og svo bara áramótin, jemundur minn krílið verður svo komið líka áður en ég veit af.
Jæja best að reyna að hundskast til að vinna eitthvað meira enda bara 4 tímar í heildina í dag, lúxus líf á manni:)
mánudagur, desember 27, 2004
Birt af Eyrún kl. 18:34
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli