fimmtudagur, desember 23, 2004

ég fæ........

Bara 30 mín eftir í vinnunni og svo er ég komin í jólafrí, ekki amalegt það. Frábært að geta notið þess að vera í fríi yfir hátíðisdagana. Var að vinna öll jólin í fyrra svo þetta er þvílíkur lúxus.
Er svona hægt og rólega að komast í jólafílinginn, er búin að hafa jólalög í eyranu í allan dag og svo um leið og ég fann skötufnykinn í mötuneytinu kom smá jólafiðringur í mig. Var samt fljót að flýja úr mötuneytinu aftur því mér finnst þessi stækja algjör vibbi;oþ
Nú er bara stefnan tekin heim að þrífa slotið og aldrei að vita nema maður trítli eitthvað í bæinn í kvöld. Varla samt að maður nenni út í þennan brunagadd.
En ég segi bara Gleðileg jól og hafði það gott yfir hátíðarnar;o)

Engin ummæli: