mánudagur, desember 13, 2004

Oj hvað ég er sybbin!
Ætlaði aldrei að geta sofnað í gær og var svo vakin eitthvað um klukkan 7:30 í morgun og var ekki sátt. Kettinum leiddist í morgun og sá ekkert betra í stöðunni en að væla bara nógu mikið til að fá mig á fætur. Ekki það að honum langaði að leika sér eða eitthvað svoleiðis nei nei hann vildi bara hafa einhvern frammi hjá sér. Eftir ca hálftíma væl gafst ég upp og fór fram úr.
Þannig að litli frekjudallurinn minn náði sínu fram í morgun, held ég fari að fá mér eyrnatappa svo ég fái frið næstu nætur.

Engin ummæli: