Get svo svarið það að fólk er gjörsamlega að fara yfirum svona rétt fyrir jólin, það eru allir að tapa sér í jólagjafakaupum. Og svo er jólakortageðveikin líka að byrja og þá fara allir að hringja og þylja upp nöfn í tugatali og heimta heimilisföng. Úff mér finnst að maður ætti að fá tvöfalt kaup í desember því það er brjálað að gera og mjög margir (ekki allir samt) gleyma því að vera kurteisir. Sem mér finnst mjög óþolandi því við erum yfirmáta kurteisar og reynum að hjálpa fólki eftir bestu getu og svo fær maður bara skítkast á móti, einfaldlega út af því að fólk er ekki að höndla að það eru að koma jól. Tek það samt fram að það eru flestir mjög kurteisir gallinn er að "skíthælarnir" sitja eftir í manni og skemma fyrir.
sunnudagur, desember 12, 2004
Púst.........!
Birt af Eyrún kl. 17:31
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli