föstudagur, desember 31, 2004

Síðasti vinnudagurinn á árinu og ég tek hann með trompi og vinn bara í 4 tíma.Annars finnst mér svoldið skrítið að það skuli vera komin gamlársdagur árið er búið að vera alveg skuggalega fljótt að líða. Enda búið að vera alveg nóg að gera hjá manni þetta árið, síðastliðnir 8 mánuðir hafa verið alveg extra fljótir að líða enda bara búnir að snúast um stækkandi kúlu og spriklandi bumbubúa:o) Bara gaman að því!En árið í heild sinni bara nokkuð gott myndi ég segja.Skrítið að horfa fram á næsta ár nóg framundan þar og það sem meira er bara vinna í 2 vikur og svo engin vinna fyrr en í lok október. Allavega ekki vinna hjá símanum þó svo að það verði alveg meira en nóg að gera hjá manni, en það er vinna sem mig hlakkar bara til að takast á við.Held samt svona að ég eigi eftir að sakna þess pínku ponsu lítið að heyra ekki bullið sem vellur upp úr kúnnunum hér á bæ, held að sá sem ég var að afgreiða áðan hafi alveg sett met enda varð ég alveg kjaftstopp og steinhissa á því sem hann sagði.
Kúnni; mig vanta að vita hvenær kringlan lokar.
ég; það lokar kl.13 í kringlunni í dag.
kúnni;nú þú veist þetta bara...... já þú ert kona takk fyrir og gleðilegt ár bæ bæ
ég:????...........ööö?????????
Og hvað kemur það málinu við að ég er kona??????
Anyways

Gleðilegt nýtt ár!!!
Hafið það gott á nýju ári!

Engin ummæli: