mánudagur, janúar 03, 2005

Birrr.......

Oj bara þetta veður er ekki að gera góða hluti. Keyrði í vinnuna í blindbyl og núna sit ég og horfi út um gluggan og hugsa til þess með hryllingi að þurfa að fara út í þetta aftur eftir klukkutíma.
bjakk þarf að fara út í bíl, keyra niður á lansa hringsóla þar í bílastæðaleit endalaust og hlaupa svo inn á deild, eða kjaga réttara sagt hleyp ekki mikið þessa dagana.
Ætla svo beint heim og leggjast upp í sófa undir teppi og kveikja á imbanum og hafa það næs.
Líkar ekki við svona veður!

Engin ummæli: