föstudagur, febrúar 04, 2005

Jahérna hér hvað tíminn líður hratt trúi því varla að litli snúllinn minn er að verða 3 vikna gamall á þriðjudaginn, og mér sem finnst ég vera nýkomin heim af fæðingardeildinni. Úff ég verð farin að ferma áður en ég veit af. Þessir 9 mánuðir í fæðingarorlofi eiga eftir að verða skotfljótir að líða með þessu áframhaldi. En þá er líka um að gera að njóta þess að vera heima ekki satt?
Enda er sko engin hætt á öðru en að ég njóti þess í botn að vera heima með svona gullmola.

Engin ummæli: