mánudagur, janúar 10, 2005

Vá hvað dagarnir líða hægt þegar maður er bara heima í afslöppun. Þessar vikur eiga eftir að verða heil eilífð. En hvað um það ég verð víst bara að taka því. Fór í skoðun í morgun og það er allt við það saman, fór líka í mónitór og krílið virðist hafa það mjög gott. Þannig að það er greinilegt að þessi hvíld er að borga sig. Annars er ég bara í því að gera allt tilbúið fara í gegnum risa fatastafla frá Binnu systir og þvo og þvo og þvo.
Ríkey yfirgaf svo klakann í dag og hún er ekkert væntanleg heim aftur fyrr en í ágúst *snökt snökt*, hafðu það gott í útlandinu og gangi þér vel með lærdóminn.
Svo kíkti hún Gróa á mig í dag ótrúlega langt síðan við höfum sést. En hún var að komast í gegnum klásus í hjúkrun svo hún fær hamingjuóskir dagsins Congrats

Engin ummæli: