Ojbara það var frost í íbúðinni þegar ég fór á fætur í morgun og allir ofnar ískaldir:( Hef ekki glóru afhverju en veit bara að það er kalt hér. Held að þetta sé svona í öllu húsinu allavega er skítakuldi frammi líka.
Okkur Emil líkar ekki við þennan kulda!!
Var að horfa á Opruh í gærkvöldi og oh my god konur háðar lýtaaðgerðum!! Vorkenndi þeirri sem kom fyrst fram hún var alveg eins og barbie,leit eiginlega út fyrir að vera úr plasti, allt andlitið afmyndað og engan veginn í samræmi. Hennar draumur var að fá mjótt nef eins og Michael Jackson þ.e eins og það lítur út í dag!!! Vá hvað sumt fólk á virkilega bágt.
Þá er nú bara betra að vera með stór eyru,kartöflunef, maga og rass og hananú!
fimmtudagur, apríl 07, 2005
hér er ekki hlýleiki
Birt af Eyrún kl. 13:46
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli