mánudagur, apríl 11, 2005

Góðir grannar

Oh ég elska nágrannana mína. Þegar ég flutti hingað inn fyrir tæpum 4 árum lánaði kona upp á 2 hæð mér sófasett af því hún vissi að ég var með svo óþægilegan sófa. Frábær nágranni!
Svo í gær kom parið sem býr upp á 3 hæð og spurði hvort okkur vantaði ekki uppþvottavél, þau voru að fá nýja og vantaði að losna við þá gömlu. Þannig að þau gáfu okkur uppþvottavél.
Án gríns þá held ég að við séum alveg einstaklega heppin með nágranna.
Get ekki beðið eftir að fá vélina, finnst nebblilega fátt leiðinlegra en að vaska upp.

Engin ummæli: