Nú er ég alveg hætt að botna í þessari mannanafnanefnd http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1142201 það er ekki langt síðan nefndin samþykkti fleiri undarleg nöfn eins og bambi, london, nóvember,skuld........
Sérstaklega finnst mér merkilegt að Ljósálfur hafi verið samþykkt.
Ljósálfur Bambi Unnarsson hljómar ekki neitt svakalega vel, hvað þá Spartakus Nóvember.
En ég þarf ekki að velta mér meira upp úr nafnapælingum en hugsa stundum hvað ætli fólk sé að spá þegar það sækist eftir að fá þessi nöfn samþykkt?????
mánudagur, júní 06, 2005
Ljósálfur Bambi
Birt af Eyrún kl. 15:00
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli