júróvisjón bara búin og engin Selma. Verð nú bara að játa að ég bjóst aldrei við því að við kæmumst upp úr forkeppninni. Held að þessi blessaði búningur hafi ekki vakið mikla lukku í evrópu og orðið til þess að enginn kaus okkur. Selma hefði betur átt að velja eitthvað annað til að vera í en appelsínubúninginn úr ávaxtakörfunni.
En er ekkert smá ánægð með norsarana og danska sjarmörinn. Frábært að þeir urðu á topp 10. Kíkti í partý til Önnu Kristínar í kvöld voða kósýstemning og mikið kjaftað eins og alltaf þegar ml-ingar eru á ferð:) En ég stoppaði bara stutt þar sem ég var með lítinn herramann með mér sem var búinn að fá alveg nóg af júróvisjón þegar kom að stigagjöfinni.
Afrekaði það í gærkvöldi að horfa á ungfrú ísland og þetta er nú svoldið broslegt sjónvarpsefni, best fannst mér þegar stelpan í fiskikjólnum var nærri dottinn og ég missti nánast andlitið þegar ein gekk inn á sviðið í bleikum barbie brúðarkjól. En svo fannst mér þetta líka svoldið svindl að sú sem vann hirti öll verðlaun sem í boði voru.
já það er sko ekki öll vitleysan eins.
Allavega nú er maður bara á fullu að spá í hvað maður eigi að gera í sumar, allavega sumarbústaðarferð plönuð og svo allt opið. Kann ekki á að vera svona í fríi allt sumarið. Er samt samt svona smá farin að kvíða fyrir að fara að byrja að vinna aftur þótt það séu alveg allavega 5 mánuðir þangað til. Veit ég er klikkuð en það er bara svo notalegt að vera svona heima með lítinn stúf. Sem minnig mig á það að ég ætti að fara að hundskast í bælið bið bara að heilsa ykkur i bili adios
sunnudagur, maí 22, 2005
Birt af Eyrún kl. 00:40
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli