Það er alveg magnað hvað ég er virk í þessu bloggi. Enda held ég að engum finnist gaman að lesa montsögur af syni mínum. Enda er maður jú bara heima að dúllast með hann alla daga. Við familían erum búin að vera aðeins á ferðalagi í sumar,fórum í bústað á Apavatni í viku. Þar mígrigndi á okkur allan tímann (mjög týpískt fyrir okkur Unnar he he), svo brunuðum við á eitt ættarmót. Og núna um verslunarmannahelgina fórum við á útihátíðina Hlemmiskeldu. Brjálað fjör á Hlemmiskeldu með jóðli og öllu tilheyrandi.
Og svo er planið að skella sér út í Flatey einhverntíman í næstu viku. Ætli sumarferðalögin verði svo ekki búin í bili. Lögðum ekki í það að fara í tjaldútilegu kannski frekar næsta sumar þegar guttinn verður orðin aðeins stærri.
föstudagur, ágúst 05, 2005
Birt af Eyrún kl. 16:21
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli