sunnudagur, ágúst 07, 2005

Raunveruleiki??????

Ég afrekaði það um daginn að horfa á heilan þátt af the swan á skjá einum og æ æ æ þvílíka ruglið. Pælið í því að skrá sig í þetta fara í einhverjar brjálaðar lýtaaðgerðir til þess eins að keppast um að komast í keppni og verða svanurinn. Keppnin ætti frekar að heita ungfrú plast 2005. Allar sem sækja um þetta þyrftu kannski að læra að mála sig og fá ráðleggingar um fataval. En nei allar í fitusog og fá svo risabrjóst og andlitið plastað frá a-ö.
Held að þetta raunveruleikaþáttaæði hljóti að fara að taka enda þetta er orðið svo mikil vitleysa.
Wife swap er akkúrat dæmi um þessa vitleysu, endilega prufa að fara inn á annað heimili í smá tíma til að sanna fyrir þér að lífið er ekkert betra hjá öðrum. Svo sannar þessi þáttur það líka að fólk í USA er ekki í lagi. Konan sem eyðir 5 klst á dag í að þrífa heimilið(hvernig svo sem það er hægt), og sú sem þoldi ekki hávaða og leyfði krökkunum sínum aldrei að fá vini í heimsókn og til að toppa allt konan sem fékk taugaáfall afþví að hundarnir hennar voru settir út í garð.
Gæti haldið endalaust áfram að telja upp dumb raunveruleikaþætti en held ég láti þetta duga allavega í bili.
Adios

Engin ummæli: