Ég er búin að klippa af mér næstum allt hárið. Feðgarnir þurftu næstum áfallahjálp þegar ég kom heim. Emil fór að háskæla leist ekkert á þessa nýju manneskju sem kom heim þrátt fyrir að hún hljómaði alveg eins og mamma hans. En hann jafnaði sig eftir smá knús. Mikið rosalega er þægilegt að vera laus við lubbann.
Mikið svakalega er dúddinn sem sér um kvöldþáttinn á sirkus ófyndinn. Er búin að horfa á örfáa þætti en af einhverjum ástæðum hætti ég alltaf að horfa því mér finnst svo sorglegt að hlusta á hann reyna að vera fyndinn. Fannst alveg brilliant þegar Barði í bang gang labbaði út og sagðist ekki nenna að vera í svona lélegu viðtali. Annars horfi ég voðalega lítið á sirkus. Nema náttúrulega Friends enda er ég forfallinn Friends aðdáandi. Svo verð ég nú að viðurkenna að mér finnst lúmskt gaman að horfa á ljóskuna Jessicu Simpson, hversu dumb er hægt að vera?
Nú eru bara 2 mánuðir í að ég þurfi að fara að druslast til að fara að vinna aftur og ég hef enga löngun í að fara að vinna. Enda veit ég ekki hvað verður því ef ég fæ vinnutímann sem ég óska eftir á skránni þá er ég nánast í vondum málum. Get bara unnirð dagvinnu og fæ þá ekki vaktaálag og þar sem launinn eru skammarlega lág þá fengi ég sama og ekkert útborgað. Þannig að það er spurning um að leita að annari vinnu sem borgar kannski mannsæmandi laun??
Finnst samt ömurlegt að vera búin að segjast koma aftur á skránna, og þurfa svo að bakka með það því ég hef ekki efni á að vinna þar.
Oh well ég þarf að hugsa málið vel og vandlega, allar uppástungur eru vel þegnar ef þið vitið um góða vinnu.
föstudagur, september 02, 2005
taut og almennt tuð
Birt af Eyrún kl. 13:24
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli