þriðjudagur, september 20, 2005

Bömmer

Það er hrein martröð að reyna að finna dagmömmu handa Emil. Það virðist enginn vera laus hér á nesinu og ekki í vesturbænum. Þá er hitt úrræðið stutt frá vinnunni en miðað við það sem ég hef heyrt er á dagskrá að við séum að fara að flytja úr ármúlanum og hvert þá???????
Oh nenni ekki svona veseni pant bara fá að vera heima með guttann þangað til hann kemst inn á leikskóla. Var ekki einhver snillingur að koma með þessa hugmynd fyrir alþingi að greiða foreldrum fyrir að vera heima með börnin sín fram til 18 mánaða? Pant ég!!!! Er nefnilega farið að styttast óþægilega mikið í að ég þurfi að fara að vinna, og ég er ekkert allt of spennt fyrir því.
Bömmer

Engin ummæli: