Nú er farið að styttast alveg óþarflega mikið í að ég þurfi að fara að vinna aftur. Og ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég ekki alveg í stuði fyrir það. Sérstaklega þar sem vinnan mín er að flytja upp í stórhöfða og ég þarf að keyra lengi lengi til að komast í vinnuna;o(
Vonandi verðum við búin að redda dagmömmumálum ef ekki þá verðum við bara að púsla einhverju saman, allt hægt ef viljinn er fyir hendi ekki satt.
En ég fer sem betur fer ekki í fulla vinnu alveg strax 80% til að byrja með og sé svo til hvað verður. Þarf allavega að sjá til hvort maður hafi efni á að vinna þarna áfram.......
Kíkti í heimsókn í vinnuna áðan og Emil var ekki lengi að gera sig heimakominn skreið um allt og heillaði alla upp úr skónum.
Ég er alveg andlaus þegar kemur að þessu bloggi, kannski skánar það eitthvað þegar ég fer aftur í vinnuna hver veit.
þriðjudagur, október 11, 2005
Birt af Eyrún kl. 14:09
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli