Ég var klukkuð af Hrönn svo ég verð að segja ykkur 5 atriði um mig.
1. Ég heiti ekki eftir neinum. Þoldi ekki nafnið mitt þegar ég var yngri (getið ímyndað ykkur uppnefnin því ég er ekki með lítil eyru) en lærði smátt og smátt að vera stolt af nafninu mín. Finnst það alveg þrælflott í dag!
2. Ég hata fugla. Er eiginlega bara hrædd við þá, veit ekki af hverju en líður rosalega illa innan um fljúgandi fugla.
3. Ég er með algjöra fóbíu fyrir því að einhver snerti á mér hnén.
4. Ég eyddi öllum sumrum í sveit þangað til ég var 16 ára. Er semsagt hálfgerður sveitalubbi.
5. Ég er rosalegur nautnaseggur.
Ég klukka Ríkey,Kristínu,Fríðu og begakus
föstudagur, september 23, 2005
Klukk
Birt af Eyrún kl. 10:53
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli