fimmtudagur, nóvember 10, 2005

óheppnin eltir hana

Það á greinilega allt að dynja á henni ömmu minni þetta árið. Ekki nóg með það að hurðin í hagkaup í skeifunni lokaðist á hana fyrr í haust með þeim afleiðingum að hún datt og rifbeinsbrotnaði og marðist á lunga. Og það skrítna er að hún er ekki sú fyrsta sem þetta kemur fyrir þarna í skeifunni ætli hagkaup fari ekkert að laga þetta hurðarskrifli?
Og loksins þegar hún er að skríða saman eftir allt saman þá datt hún í gær og er á gjörgæslu upp á borgó. Olnboginn í molum og allur negldur saman og stór sprunga í upphandlegsbeininu.
Alveg magnað hvað það þarf alltaf allt að gerast á sama tíma nánast.
Elsku amma mín ég sendi þér alveg RISASTÓRT knús.

Engin ummæli: