þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Vinna hvað????

Byrjar ekki vel hjá mér þetta vinnustand. Ekki nóg með að ég þurfti að tilkynna mig veika fyrsta daginn þá er ég ekki búin að mæta í gær og í dag. En ég hef svo sem mjög góða og gilda ástæðu til að vera bara heima, enda er litla músin mín alveg sárlasinn. Litla greyið var með 40 stiga hita í gær og var slappur eftir því, er aðeins skárri í dag sem betur fer. Alveg ótrúlega erfitt að horfa á þetta litla skinn svona mikið veikt og geta nánast ekkert gert nema knúsað hann og kysst. Skil ekki hvernig fólk með langveik börn meikar þetta.
En út í aðra sálma fór í snilldar partý hjá henni Guðlaugu Helgu á föstudaginn, takk fyrir mig Guðlaug mín. Var nú bara edrú í þetta sinn því Bogga og Binna voru að passa og þær þurftu nú að fá að komast heim á skikkanlegum tíma. Kannski ég taki bara djammið út næstu helgi. Þarf örugglega rétt svo að þefa af bjór til að finna á mér enda ekki búin að drekka neitt né djamma síðan í maí í fyrra....
Jæja nóg af þvaðri í bili best að fara að knúsa lasarusinn minn

Engin ummæli: