föstudagur, janúar 07, 2005

Nú er ég farin.......

Jæja þá er komið að því ég er hætt að vinna, komin í veikindaleyfi þangað til ég byrja í fæðingarorlofi. Ætlaði að vinna í viku í viðbót en eftir skoðanir í vikunni komumst við Rósa ljósa að því að það væri mun betra að hætta núna í staðinn fyrir að taka einhverjar áhættur. Enda er blóðþrýstingurinn búin að vera svoldið hár og svo er dálítill bjúgur farin að koma líka svo ég held að það sé best fyrir mig og krílið að ná góðri hvíld. Enda er orðið svo stutt eftir að það er kannski eins gott að hvíla sig og safna smá orku, held ég þurfi alveg á henni að halda.
Þannig að næstu vikur fara bara í að gera allt tilbúið og hugsa vel um sjálfan mig og krílið.
Jæja nóg komið af nethangsi best að fara að ráðum ljósmóðurinnar og leggjast í sófann með tærnar upp í loft.

Engin ummæli: